Yfirlagnir á Suðursvæði 2022 - 2023, klæðing
Opnun tilboða 15. febrúar 2022. Yfirlagnir með klæðingu á Suðursvæði 2022-2023.
Helstu magntölur eru:
- Yfirlagnir með einföldu lagi klæðingar með þjálbiki 380.000 m2
- Yfirlögn með kílingu 18.000 m2
- Yfirsprautun á klæðingu 18.000 m2
- Hjólfarafylling með einföldu lagi klæðingar 18.000 m2
- Flutningur steinefna 5.700 m3
- Flutningur bindiefna 660 m3
Verki skal að fullu lokið 1. september hvort ár.
Bjóðandi | Tilboð kr. | Hlutfall | Frávik þús.kr. |
Þjótandi ehf., Hellu | 269.990.600 | 114,6 | 41.611 |
Áætlaður verktakakostnaður | 235.690.000 | 100,0 | 7.310 |
Borgarverk ehf., Borgarnesi | 228.380.000 | 96,9 | 0 |